Rússar byggja upp ratsjárkerfi í Kaliningrad

Rússar eru sagðir vera að byggja upp risavaxið ratsjárkerfi í Kaliningrad, hólmlendu Rússlands við Eystrasaltið. Uppbyggingin fer fram í borginni Gvardeysk, skammt frá landamærum Póllands og Litáen.The Times greinir frá því að uppbyggingin komi fram á gervihnattamyndum. Myndirnar birtust fyrst í þýska dagblaðinu Frankfurter Allgemeine Zeitung.The Times segir að ratsjárkerfið sé með þrjú loftnetsmöstur sem hvert um sig er um 500 metra hátt.Ratsjárnar virðast vera yfirborðsratsjár sem eiga að geta greint flugskeyti, herskip og flugvélar í mikilli fjarlægð, eða á milli ríflega 880 kílómetra til 3200 kílómetra fjarlægð. Kerfið gæti því náð allt yfir til Bretlands og norður- og vesturhluta Evrópu.Myndirnar eru sagðar nýjasta sönnun þess að verið sé að byggja upp háþróaða miðstöð fyrir rafrænan
Rússar byggja upp ratsjárkerfi í Kaliningrad

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd