Stuðningur Íslands við Úkraínu er ekki í samræmi við stefnu sem mörkuð var í þingályktunartillögu sem Alþingi samþykkti í lok apríl fyrir tveimur árum.Þar kom fram að stefnan ætti að vera „...hlutfallslega sambærileg að umfangi við það sem önnur ríki Norðurlandanna leggja af mörkum.“Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Kiel-stofnunarinnar, sem tekur saman gögn um stuðning alþjóðasamfélagsins við Úkraínu, sést að þetta markmið sem Alþingi setti sér í apríl 2024 hefur ekki náðst hingað til.Stuðningur Íslands hefur samkvæmt þessu yfirliti numið 0.47 af vergri landsframleiðslu (VLF), á meðan Danmörk hefur veitt stuðning sem nemur 3.49 prósentum, í Noregi er þetta hlutfall 2.89 prósent, og í Svíþjóð 2.11 prósent. Í Finnlandi er þetta hlutfall 1.51 prósent - meira en þrisvar sinnum hærra en á Íslandi.