Sigríður Kristinsdóttir sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu telur tímabært að endurskoða það hvort að öll mál þar sem ágreiningur er um umgengni við barn í skilnaði eigi að fara í sáttameðferð, sérstaklega ef ofbeldi hefur verið á heimilinu. Hún segir ágreiningsmálum milli foreldra hafa fjölgað hjá embættinu.