Bótasjóður Sameinuðu þjóðanna vegna tjóns og eyðileggingar af völdum loftslagsbreytinga ætlar að úthluta 20 milljónum dollara í neyðaraðstoð til Nepal eftir mannskætt skyndiflóð þar í ágúst. Þetta er í fyrsta sinn sem sjóðurinn gefur vilyrði fyrir greiðslu úr sjóðnum vegna hamfara af völdum loftslagsbreytinga.Lönd geta aðeins sótt um 20 milljónir dollara að hámarki úr sjóðnum í hverri umsókn. Yfirvöld í Nepal þurfa að leggja fram tillögu fyrir sjóðinn um það hvernig fénu verði varið áður en greitt er úr sjóðnum.Fjármálaráðherra Nepal, Swarnim Wagle, er ánægður með vilyrðið og segir styrkinn kærkominn. Upphæðin er þó aðeins brotabrot af áætluðum kostnaði stjórnvalda í Nepal, sem hafa metið kostnað við uppbyggingu 4,78 milljarða dollara.Yfir 1.400 fórust í flóðinu og enn er um 5000 saknað.