Verk eftir Monet seldist fyrir metverð á uppboði

Verk eftir Monet seljast gjarnan dýrum dómi á uppboðum. Hér er verkið Gular og fjólubláar liljur á listasafninu Musee Marmottan Monet í París, en þetta er annað málverk eftir Monet með liljum en það sem seldist á uppboði í gær.EPA / Mohammed BadraOlíumálverkið Liljur eða Íris, eftir franska impressjónistann Claude Monet, seldist fyrir 50 milljónir evra í París í Frakklandi í gær. Verkið er þar með dýrasta listaverk sem selt hefur verið á uppboði í landinu. Verkið er 1,6 metrar á hæð og 1,8 metrar á breidd og hefur aldrei verið sýnt opinberlega.Monet málaði verkið skömmu áður en hann lést, 5. desember 1926, eða fyrir tæpum hundrað árum. Verkið var í eigu Schlumberger-fjölskyldunnar og hefur hangið uppi á höfðingjasetri fjölskyldunnar þar til nú.Á vefsíðu uppboðshaldara má lesa meira um Lilj
Verk eftir Monet seldist fyrir metverð á uppboði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd