Ferðafélag Íslands hefur endurbyggt skála félagsins í Langadal í Þórsmörk á grunni þess gamla. Húsið var smíðað á Selfossi og svo ekið með það í Þórsmörk þar sem því var púslað saman.Gamli skálinn var reistur 1954 og byggt við hann 1972 og 1974. Upphaflega stóð til að lagfæra hann en á endanum var ákveðið að rífa hann og byggja nýjan á sama grunni.„Það er verið að stækka, færa hann aðeins til nútímamyndar og komið með salerni inn í skálann líka fyrir gestina,“ segir Stefán Jökull Jakobsson, umsjónarmaður skála og fasteigna Ferðafélags Íslands, en fram til þessa hefur salerni verið í sérhúsi neðan við skálann.Í nýja skálanum verður rúmgott anddyri og fleiri og stærri gluggar. „Við erum að setja stóra glugga til þess að nýta þetta mikilfenglega útsýni hérna yfir Eyjafjallajökul og yfir Kross