Hilmar Gunnarsson bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir að farið sé yfir sjónarmið Eflingar um útvistaða ræstingaþjónustu í bænum. Mosfellsbær útvistar ræstingum til fyrirtækisins iClean.Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar ritaði harðorða skoðanagrein á Vísi í gær.Þar gagnrýndi hún Mosfellsbæ fyrir það hvernig staðið hefði verið að eftirliti með starfi ræstingafólks í bænum og því hvort ákvæði kjarasamninga væru uppfyllt.„Við viljum auðvitað eiga góð og málefnaleg samskipti við Eflingu og virðum mikilvægt hlutverk þeirra,“ segir Hilmar. FORMAÐUR EFLINGAR LÝSIR ÁHUGALEYSI AF HÁLFU BÆJARINS Meðal þess sem Sólveig Anna vakti athygli á var það að fulltrúar Eflingar hefðu farið inn á þrjá grunnskóla í Mosfellsbæ í vinnustaðaeftirlit í haust. Hún segir að þar hafi sex starfsmenn iClean verið