Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar, Hörður Arnarson, ræddi um starfslok sín í Kastljósi kvöldsins. Hann segist ekki hafa notið nægs trausts í starfinu en að þrátt fyrir það yfirgefi hann fyrirtækið sáttur. Hörður hefur starfað sem forstjóri Landsvirkjunar í 17 ár. Í októberbyrjun tilkynnti hann nokkuð óvænt um starfslok sín og gaf þá skýringu að þau mætti rekja til ágreinings um stjórnarhætti hjá fyrirtækinu. Umboð og verklag forstjóra segir Hörður að þurfi að vera skýrt. Þá eigi forstjóri að geta notið trausts í gerð flókinna viðskiptasamninga við stærstu fyrirtæki heimsins og sömuleiðis í að gæta hagsmuna þjóðarinnar. > „Mér fannst ég ekki hafa það traust sem þarf að vera til staðar“ Hörður lýsir því að sú tilfinning að forstjóri njóti nægilegs trausts stjórnar hafi dvínað. þó „Tilfin