Þrjú sveitarfélög hafa brotið ákvæði sveitarstjórnarlaga og fengið áminningu frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga. Samtals sjö sveitarfélög uppfylla ekki ákvæði í frumvarpi að nýjum sveitarstjórnarlögum.Nýr formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga segir að á þessu ári hafi neikvæð áhrif verðbólgu og hárra vaxta mikil áhrif á rekstur sveitarfélaga. Síðasta ár var betra. Þá uppfylltu öll sveitarfélög landsins, 61 talsins, skuldaregluna, það er að segja lögbundið skuldaviðmið. Þá var ekkert sveitarfélag með skuldir sem voru meiri en 150% af tekjum.Fjárhagsstaða þriggja sveitarfélaga er svo slök að þau eru brotleg við ákvæði sveitarstjórnarlaga og hafa fengið áminningu frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga. Tap varð á rekstri fjögurra annarra sveitarfélaga þrjú síð