Framkvæmdir í Þverholti við Hlemm, sem áætlað var að stæðu fram á mitt sumar, eru enn í fullum gangi. Reykjavíkurborg stefnir nú að því að ljúka þeim fyrir áramót. Á sama tíma er nýr framkvæmdaráfangi að hefjast á norðursvæði Hlemms vegna uppbyggingar Borgarlínu. Honum á að ljúka í lok árs 2027.