Nýjar og óseldar íbúðir henta oft ekki í leigu

Í skýrslu Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) sem birt var í dag kemur fram að kaupsamningar í ágúst hafi ekki verið færri í tólf ár. Um 6.800 íbúðir eru til sölu, um þriðjungi fleiri en um áramótin. Talning HMS í september leiddi í ljós að hátt í 2.000 nýjar íbúðir standa tómar og óseldar.Mjög dýrt er að sitja uppi með óseldar nýjar íbúðir í stórum stíl því ofan á byggingarkostnað bætist fjármagnskostnaður - sem er ærinn. Byggingafélög hafa brugðist við þessu ástandi með ýmsum hætti.Í einhverjum tilfellum hafa nýjar íbúðir sem ekki hafa selst verið boðnar til leigu. Vandinn er að leigumarkaðurinn hefur líka kólnað.Og hvernig gengur þá að leigja þessar íbúðir út?Við ræddum meðal annars um það við Vigni Má Lýðsson, stofnanda og framkvæmdastjóra Igloo, sem rekur vinsæla leigusí
Nýjar og óseldar íbúðir henta oft ekki í leigu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd