Seðlabanki Íslands geldur varhug við frumvarpi Ragnars Þórs Ingólfssonar um leigubremsu. Hann telur að áhrifin gætu orðið öfug, það er að framboð á leiguhúsnæði minnki og biðlistar lengist.Samkvæmt frumvarpi Ragnars Þórs má einungis hækka húsaleigu einu sinni á ári og má hækkunin ekki nema meira en sem nemur hækkun vísitölu neysluverðs. Er markmiðið meðal annars að koma í veg fyrir mánaðarlegar hækkanir húsaleigu þar sem þær valdi hærri verðbólgu en árlegar hækkanir.Seðlabankinn er ósammála þessu samkvæmt umsögn bankans sem birt hefur verið á vef Alþingis. Munurinn sé einungis sá að verði leigubremsa að veruleika sé líklegt að leigusamningar hækki á tilteknum tíma, svo sem um áramót eða á haustin. Áhrifin kæmu því líklega fram í árstíðarsveiflum verðbólgu en hefðu engin áhrif á verðbólgu t