Þetta er eins og að spila leik og breyta reglunum í miðjum leik og maður skilur ekkert leikinn lengur, segir fulltrúi Ungheilla, ungmennaráðs Barnaheilla, um fyrirhugaðar breytingar menntamálaráðherra á námsmatskvarða í 10. bekk grunnskóla. Hún gagnrýnir menntamálaráðherra fyrir samráðsleysi. HUGMYNDIN GÓÐ EN TÍMARAMMINN OF KNAPPUR Nemendum í 10. bekk grunnskóla verður gefin lokaeinkunn í tölustöfum í stað bókstafa í vor, verði áætlanir Ingu Sæland menntamálaráðherra að veruleika.Það verður í fyrsta sinn í rúman áratug sem einkunnir í grunnskóla verða gefnar í tölustöfum, eða síðan bókstafseinkunnir voru teknar inn í aðalnámsskrá 2011 og innleiddar að fullu 2015.Breytingarnar voru settar í samráðsgátt stjórnvalda og umsagnarfrestur rann út í gær. Hundrað og sextán umsagnir bárust frá sk