Frestar ekki innleiðingu nýs einkunnakerfis grunnskóla

Menntamálaráðuneytið hyggst ekki fresta innleiðingu nýs einkunnakerfis sem til stendur að innleiða á næsta ári. Hundrað og sextán umsagnir um breytinguna bárust í samráðsgátt stjórnvalda.Vinna er hafin við að leggja mat á umsagnirnar og aðlaga breytingar eftir þörfum, samkvæmt upplýsingum menntamálaráðuneytinu. Sú vinna hefur verið sett í forgang.Grunnskólar hafa til 10. janúar til að birta endurskoðaða skólanámsskrá og segir ráðuneytið þann tímaramma raunhæfan. Skólunum verði veittur allur sá stuðningur sem þeir þurfa til að innleiða breytingarnar.Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra.RÚV / Ragnar Visage
Frestar ekki innleiðingu nýs einkunnakerfis grunnskóla

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd