Rjúpnaveiðitímabilið hefst á morgun

Fálkinn og maðurinn eru verstu óvinir rjúpunnar samkvæmt kvæði Jónasar Hallgrímssonar, Óhræsið.RÚV / Einar RafnssonRjúpnaveiðitímabilið hefst á morgun í öllum landshlutum. Veiðar eru leyfðar frá og með föstudögum og til og með þriðjudögum í tæpan mánuð eða allt til jóla þar sem tímabilið er lengst. Á Suðurlandi og Norðvesturlandi má veiða til 17. nóvember, á Vestfjörðum viku lengur, til 1. desember á Vesturlandi og Norðvesturlandi og til 22. desember á Austurlandi. Þar þykir rjúpnastofninn sterkastur. Veiðar eru bannaðar á Reykjanesskaga að Hvalfirði, Þingvallavatn og Ölfusá. Veðurspáin er góð á morgun og ætla má að margir byssuleyfishafar drífi sig af stað. Enginn má hamstra því bannað er að selja rjúpu.
Rjúpnaveiðitímabilið hefst á morgun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd