Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið óskar eftir dæmum um hindranir sem notendur Apple-tækja mæta vegna þess að íslenska er ekki í boði. Dæmin eiga að styrkja samtal ráðuneytisins við Apple um innleiðingu íslensku í stýrikerfi fyrirtækisins og sýna hvaða ávinningur fylgi íslenskum tungumálastuðningi.