Úrskurðað endanlega um gufubaðið við Ægisíðu

Gestur í gufubaði við Ægisíðu.RÚV / Ragnar VisageÚrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi í dag endanlegan úrskurð þar sem hafnað var kröfu Sánagús ehf. um að fella úr gildi ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um að gufubað sem rekið er í grásleppuskúrnum Sækoti við Ægisíðu þyrfti starfsleyfi. Áður hefur verið sagt frá bráðabirgðaúrskurði nefndarinnar. Nefndin segir skýrt í lögum að atvinnureksturinn þurfi starfsleyfi. Sánagús hefur rekið baðstofu þarna í um tvö ár. Starfsemi er í Sækoti samkvæmt stundaskrá og kostar stakur tími 5.500 krónur. Reykjavíkurborg telur sig eiga skúrinn og krafðist þess í vor að hann yrði tæmdur. Það virðist ekki hafa verið gert.
Úrskurðað endanlega um gufubaðið við Ægisíðu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd