Til eru leikskólar hér á landi þar sem ekki er gert ráð fyrir að krónu sé varið til bókakaupa vegna fjárskorts. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem Gerður Kristný Guðjónsdóttir rithöfundur vann fyrir Félag íslenskra bókaútgefenda undir yfirskriftinni Lestur er lýðheilsa: Könnun á viðhorfum starfsfólks bókasafna og sveitarfélaga til lestrarmenningar í sveitarfélögum landsins.Í Kastljósi var fjallað um skýrsluna og í framhaldi af því var inntak hennar gaumgæft í myndveri með safnstjóra Borgarbókasafnsins í Úlfarsárdal og formanni Rithöfundasambands Íslands.Rauði þráðurinn í nýrri skýrslu sem Gerður Kristný Guðjónsdóttir vann fyrir Félag íslenskra bókaútgefenda er skortur á heildstæðri stefnu um bókakaup og bóklestur, sérstaklega á leikskólum.„Ég hringdi út um allt land í almenningsbókasöfni