Geðrofslyfið quetiapín er algengasta geðrofslyfið meðal íbúa hjúkrunarheimila hér á landi. Rúmlega þriðjungur íbúanna fékk geðrofslyf í fyrra. Heilbrigðisráðherra telur nauðsynlegt að bæta eftirlit með lyfjagjöfum eldra fólks. Heilbrigðisráðherra segir unnið að því að bæta eftirlit með lyfjagjöfum á hjúkrunarheimilum. Fara eigi reglulega yfir lyfjanotkun íbúa hjúkrunarheimila og bæta skráningu á því hvaða lyf þeir fá og hvers vegna.