Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist ekki ætla að styðja þingsályktunartillögu formanna stjórnarandstöðuflokkanna um að draga formlega til baka aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu.Þetta kom fram í svari hennar við fyrirspurn Jens Garðars Helgasonar, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, í óundirbúnum fyrirspurnartíma. Spurði Jens Garðar hvort hún myndi, í ljósi þess að þjóðin hafi hafnað aðildarviðræðum og að Flokkur fólksins hafi ítrekað lagt fram tillögu um sama efni, styðja tillögu formannanna.Inga sagðist telja að það væri eðilegasti hlutur í heimi en hún myndi þó ekki gera það. “Nú er ég hér í ríkisstjórn með tveimur öðrum flokkum og við höfum í engu sett þetta á okkar stefnuskrá.”Inga rifjaði upp í síðara svari sínu að á þeim tíma þegar Flokkur fólksins lagði til að aðild