Vinnuhópur heilbrigðisráðherra lagði fram 42 tillögur til að bæta þjónustu við þá sem eru með ME, langvinnt covid, POTS og skylda sjúkdóma. Ráðast þurfi í töluvert af umbótum, þar á meðal aukna vitundarvakningu um tilvist sjúkdómanna. Vinnan tók mun lengri tíma en upphaflega var gert ráð fyrir.