Játaði að hafa nauðgað fatlaðri konu og lét sig svo hverfa

Erlendur karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald þar sem talið er að hann myndi ella reyna að koma sér undan réttvísinni. Hann var ákærður í fyrra fyrir að hafa nauðgað andlega fatlaðri konu árið 2022 en eftir útgáfu ákæru fannst hann hvergi, þangað til að hann var gripinn í Leifsstöð á sunnudaginn. Hann hefur þegar játað nauðgunina og borið fyrir sig að hafa misst rökhugsun og ekki getað hætt samræði við konuna þrátt fyrir að hún biði hann um það.
Játaði að hafa nauðgað fatlaðri konu og lét sig svo hverfa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd