Dómari við Héraðsdóm Vesturlands dæmdi karlmann á mánudag til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar. Hann var að auki dæmdur til að greiða sambýliskonu sinni 1,2 milljónir króna í miskabætur.Maðurinn hefur áður verið sakfelldur fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn barni. Það gerðist 2020 og þá hlaut hann þriggja ára fangelsisdóm. Fyrr á þessu ári var hann sakfelldur fyrir þrjú ofbeldisbrot í nánu sambandi gegn sömu konu og hann braut á í þessu síðasta máli.Nafn mannsins kemur ekki fram í dóminum. ÞÓTTI EKKI SANNAÐ AÐ HANN ÆTLAÐI AÐ DREPA KONUNA Maðurinn var ákærður fyrir tilraun til manndráps og fyrir stórfelld brot í nánu sambandi, framin í júlí. Samkvæmt ákæru barði hann konuna ítrekað og þrengdi að öndunarvegi hennar þannig að hún hætti að geta andað.Dómari taldi ekki sannað að maðurin