Enn bólar ekkert á friði milli Bandaríkjanna og Írans. Heimsmarkaðsverð hráolíu er komið í 112,55 dollara á tunnu, sem er nálægt hápunktinum á þessu ári sem var í maí. Í byrjun árs var verð á tunnu 60,7 dollarar.Íranski byltingarvörðurinn hótaði í morgun að hefja aftur árásir á bandarískar herstöðvar í Mið-Austurlöndum láti Bandaríkjaher ekki af því að fylgja skipum í gegnum Hormússund. „Þetta er alvarleg viðvörun,“ segir í yfirlýsingu.Í byrjun þessa árs kostaði tunna af hráolíu 60,7 dollara. Hér er miðað við gögn frá Trading Economics.Í lok febrúar réðust Bandaríkin og Ísrael á Íran og þá má sjá hvernig olíuverð tók að hækka. Það náði hápunkti 4. maí þegar það fór 114,44 dollara og tók smádýfu þegar örlaði á friðarvonum en hækkaði svo aftur. Þegar þetta er skrifað er það 112,55 dollarar á