Eins og greint hefur verið frá í fréttum RÚV strandaði flothringur af sjókví í Patreksfirði um miðjan september. Illa gekk að sækja hringinn sem barðist um í fjöruborðinu í firðinum. Hann er í eigu eldisfyrirtækisins Arctic fish.Í gær átti að sækja hann og koma honum á öruggan stað. Það gekk ekki betur en svo að þegar búið var að draga hringinn á flot slitnaði hann frá og rak í burtu á nýjan leik. Myrkur var á svæðinu þegar atvikið átti sér stað. Hringinn rak um einn til tvo kílómetra þar til hann strandaði aftur og situr nú fastur.Þetta staðfesti Egill Ólafsson, þjónustustjóri Arctic Fish, í samtali við fréttastofu. Hann telur enga hættu hafa verið á ferðum. Þeir hafi getað fylgt hringnum þar til hann rak á land.„Við erum bara að bíða eftir að veðrið lægi. Við förum um leið og það gengur