Seðlabankinn sýknaður af bótakröfu Þorsteins Más

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Seðlabankanum í vil í miskabótamáli sem Þorsteinn Már Baldvinsson höfðaði gegn bankanum.Dómurinn var kveðinn upp í morgun og greinir Morgunblaðið frá dómsniðurstöðunni. Samkvæmt frétt fjölmiðilsins var Seðlabankinn sýknaður af kröfu Þorsteins Más um miskabætur. Hann krafðist bóta vegna meðhöndlunar Seðlabankans á gögnum sem bankinn aflaði við húsleit hjá Samherja 2012. Hún var gerð vegna rannsóknar á hugsanlegum gjaldeyrislagabrotum fyrirtækisins. Sú rannsókn var felld niður.Persónuvernd komst síðar að þeirri niðurstöðu að Seðlabankinn hefði ekki haft heimild til að varðveita persónuupplýsingar um Þorstein Má að málinu loknu. Hún taldi að miðlun þeirra upplýsinga til héraðssaksóknara hefði þó verið í samræmi við lög.Fréttin verður uppfærð.
Seðlabankinn sýknaður af bótakröfu Þorsteins Más

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd