Vísindamenn hafa uppgötvað áður óþekkta tegund ferskvatnssnigils í helli í Kína.Snigillinn, sem hefur fengið fræðiheitið Erhaia dijiang, hefur aðlagast lífi í algjöru myrkri, meðal annars með því að missa augun.Hann fannst í 2.062 metra hæð yfir sjávarmáli og er það hæsti fundarstaður snigils af ættinni Erhaiidae sem vitað er um.Snigillinn lifir í grunnu vatni í kalksteinshelli og nærist meðal annars á smásæjum þörungum sem vaxa á steinum. Hann er afar ljósnæmur og hefur ekki fundist utan hellisins. Rannsóknin á tegundinni var birt í vísindaritinu Subterranean Biology.Aðeins þrír lifandi fullorðnir sniglar fundust þegar vísindamenn rannsökuðu hellinn í ágúst 2025.Engir ungir sniglar fundust og hafa vísindamenn því áhyggjur af framtíð tegundarinnar. Þeir kalla eftir frekari rannsóknum á hel