Borgarstjórn samþykkti á þriðjudag að vísa til borgarráðs tillögu Samfylkingarinnar um að vinna heildstæða úttekt á mögulegum áhrifum af notkun gervigreindar og aukinnar sjálfvirknivæðingar á rekstur borgarinnar, atvinnustig íbúa, tekjustofna borgarinnar og samfélagslegan jöfnuð til næstu tíu ára. GERVIGREINDIN KOMIN TIL AÐ VERA Í bókun borgarfulltrúa Samfylkingar segir að gervigreindin sé komin til að vera og geti orðið ein mesta framfarabylting okkar tíma. Hún geti aukið framleiðni, dregið úr skriffinnsku og gefið starfsfólki borgarinnar meiri tíma í að veita góða almannaþjónustu. Borgin eigi að vera í fremstu röð við að nýta tæknina til góðs á ábyrgan hátt. Í bókuninni er talað um að stærsti hluti tekna borgarinnar byggi á útsvari af launum íbúa en borgin fái hvorki hlut í tekjuskatt