Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir að setja verði mikinn fyrirvara við yfirlýsingar Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að stríðslok í Úkraínu hafi aldrei verið jafn nærri.Trump sagði eftir fund Steve Witkoff, erindreka síns, og Vladimírs Pútíns, forseta Rússlands, í gær. Að loknum þeim fundi sagði rússneskur embættismaður að þarlend stjórnvöld væru reiðubúin til þríhliða viðræðna Rússlands, Úkraínu og Bandaríkjanna. Það yrði þó ekki fyrr en eftir þingkosningar í Bandaríkjunum í næsta mánuði.Erlingur geldur varhug við yfirlýsingu Trumps um endalok stríðsins.„Nálgun hans varðandi það að enda þetta stríð virðist enn þá vera hin sama, að öll eftirgjöfin sé Úkraínumegin og að Rússar verði verðlaunaðir með upptöku venjulegra samskipta við Bandaríkin og einhverra gríðarlegra viðskip