Félagið Aurora Abalone (Sæbýli hf.) hefur lokið 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu til uppbyggingar 100 tonna árlegrar framleiðslu.Í fréttatilkynningu frá félaginu segir að fjármagnið verði nýtt til að styðja við stærsta uppbyggingaráfanga í sögu félagsins, sem felst í að byggja upp 100 tonna árlega framleiðslu á abalónum. Aurora Abalone rekur eina abalónueldi Íslands í Grindavík og á Reykjanesi.Abalónur, sem einnig eru þekktar undir nafninu sæeyra eða gliteyra, eru skelfiskur. Þær teljast til sælkeraafurða og eru vinsælar í japanskri matargerð.Aurora Abalone byggir á áratugalöngu rannsóknar- og þróunarstarfi. Félagið rekur hlýsjávarlandeldi í Grindavík og í Auðlindagarði HS Orku á Reykjanesi. Eldið nýtir hraunsíaðan borholusjó sem hitaður er með affallssjó frá jarðvarmavirkjun og sjáva