Hættuástand vegna öryggisgalla í PHP-forritunarmálinu er ekki yfirstaðið að mati sérfræðings hjá CERT-IS, netöryggissveit íslenskra stjórnvalda. Bjarki Þór Sigvarðsson, fagstjóri ástandsvitundar hjá Netöryggissveitinni CERT-IS, hvetur öll minni fyrirtæki sem ekki sjá um vefi sína sjálf til þess að setja sig í samband við þá sem reka vefina til þess að athuga hvort þeir þarfnist uppfærslu.„Og hættan er í raun ekki liðin hjá fyrr en að allir hafa uppfært,“ segir Bjarki. Mikill meirihluti, eða allt að 70%, vefsíðna á netinu reiðir sig á PHP-forritunarmálið að einhverju leyti.„Svo það er stórt verkefni fram undan,“ segir Bjarki. Rætt var við hann í Morgunútvarpinu á Rás 2 í dag.Bjarki segir að fyrir minni fyrirtæki sé að hafa samband við þá netþjónustu sem rekur vefinn. Einnig var birt frétt á