Fjögur ungmenni grunuð um innbrot

Lögreglubíll.RÚV / Sölvi AndrasonLögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning í gær eða nótt um fjögur ungmenni sem voru að brjótast inn í húsnæði í umdæmi 1, sem er Austurbær, Miðborg, Vesturbær og Seltjarnarnes.Í dagbók lögreglu kemur fram að lögregla fór á vettvang og stöðvaði bifreið með gerendum sem voru allir undir lögaldri. Lögregla hafði samband við foreldra vegna málsins.Tilkynnt var um einstakling í bíl sem var að gefa börnum pening fyrir utan skóla í Kópavogi eða Breiðholti. Lögregla fór á vettvang en bíllinn var þá hvergi sjáanlegur.
Fjögur ungmenni grunuð um innbrot

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd