Tveimur konum frá Sviss og Austurríki sem voru í haldi mannræningja í eitt og níu mánuði í Níger hefur verið sleppt. Fjölmiðlar í Líbíu segja að konurnar séu komnar til Benghazi í Líbíu.Eva Gretzmacher er 76 ára og Claudia Abbt er 69 ára. Þær þökkuðu herforingjanum Khalifa Haftar og syni hans Saddam fyrir að hafa leyst sig úr haldi.Nokkur óöld hefur ríkt í Líbíu allt frá því að Muammar Gaddafi var steypt af stóli árið 2011. Sameinuðu þjóðirnar viðurkenna stjórnvöld í Trípólí sem leidd eru af forsætisráðherranum Abdulhamid Dbeibah.Líbíski stríðsherrann Khalifa Haftar hefur verið áhrifamikill í Líbíu undanfarin ár og ráðið að mestu austur- og suðurhluta landsins. Hann ræður yfir öflugum her og flugvélum.