Átta særðir eftir árásir í Kyiv og Moskvu

Menn virða fyrir sér gíg eftir flugskeytaárás Rússa í Kyiv, Úkraínu í gær, 21. október.AP / Evgeniy MaloletkaAð minnsta kosti sex særðust í flugskeytaárás Rússa á Kyiv, höfuðborg Úkraínu, í nótt. Borgarstjóri Kyiv, Vitali Klitschko, greindi frá árásunum sem gerðar voru á fjölmarga staði í borginni, þar á meðal íbúðarhúsnæði og samgönguinnviði.Þá særðust tveir í drónaárásum úkraínska hersins á Moskvu, höfuðborg Rússlands, í nótt.Borgarstjóri Moskvu, Sergei Sobyanin, sagði í færslu á samfélagsmiðlum að 630 drónum hefði verið flogið að Moskvu-héraði og þar af hefði 163 drónum verið beint að Moskvuborg. Flestir drónarnir voru eyðilagðir af loftvarnarkerfum.
Átta særðir eftir árásir í Kyiv og Moskvu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd