Yfir þúsund stúdentar komu marserandi til Belgrad, höfuðborgar Serbíu, í gærkvöld frá ýmsum borgum í landinu. Þingkosningar verða í landinu á sunnudaginn.Stúdentarnir fengu líflegar móttökur á göngu sinni til Belgrad. Íbúar í þorpum og bæjum tóku á móti þeim með mat og faðmlögum og vegfarendur á dráttarvélum og hjólum fylgdu þeim eftir. Margir voru komnir langa leið, líkt og Ognjen Nestorovic sem gekk frá Valjevo til Belgrad, um eitt hundrað kílómetra langa leið.Fjöldahreyfing stúdenta teflir fram lista í kosningunum sem er talinn helsta ógn við Serbneska framfaraflokkinn, SNS, flokk fyrrum forseta landsins, Aleksandar Vučić. Kosninganna hefur verið beðið með eftirvæntingu en stúdentar hafa leitt fjölmörg og mikil mótmæli gegn Vučić frá 2024.Mótmælin brutust fyrst út eftir mannskætt slys 1