Lögfræðingur hjá Neytendasamtökunum segir mál flugfarþega sem taldi sig hafa boðið fimm þúsund krónur í uppfærslu á fyrsta farrými en greiddi í raun sexfalt hærri fjárhæð því miður ekki koma sér á óvart. Að mörgu þurfi að huga þegar komi að ferðalögum erlendis og þar þurfi ekki síst að lesa vel yfir skilmála hjá bílaleigum.