Dæmdur fyrir skjalafals en sleppur við refsingu

Hæstiréttur hefur staðfest dóm Landsréttar yfir Lárusi Guðmundi Jónssyni, sem ákærður var fyrir skjalafals. Brotið var framið í maí 2023. Áður hafði Landsréttur snúið við sýknudómi Héraðsdóms.Lárusi var gefið að sök að hafa við samningagerð ritað nafn annars manns fyrir hönd einkahlutafélags sem Lárus hafði keypt af manninum sama dag og brotið var framið. EKKI DÆMD REFSING Í dómi Hæstaréttar segir að ákærði hafi í júní 2023 hlotið sex mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir fjárkúgun. Þar sem skjalafalsið hafi átt sér stað áður en dómurinn fyrir fjárkúgun féll beri að dæma honum aukalega refsingu.Hæstiréttur komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að hefði Lárus verið fundinn sekur fyrir skjalafals samhliða fjárkúgunardómnum „má áætla að hann hefði ekki hlotið þyngri refsingu en honum v
Dæmdur fyrir skjalafals en sleppur við refsingu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd