Á haustmánuðum hefur verið töluvert um að bílar verði fyrir tjóni á bílaplani heimavistar MA og VMA á Akureyri. Til skoðunar er að bæta við öryggismyndavélum.Það sem verra er að oftar en ekki eru bílar skemmdir og tjónið ekki tilkynnt. Slíkt hefur færst í aukana að undanförnu segir Karl Frímannsson, skólameistari í MA.„Við höfum orðið var við það núna í haust að tilfellum hefur fjölgað. Þó þetta sé ekki einhver alda af atvikum þá er þetta samt meira en verið hefur. Við erum að velta fyrir okkur hvort að það skipti máli að vera með myndavélar, við vitum að það er fælingarmáttur en það er ekki allt unnið með að fjölga myndavélum. Fræðsla er kannski miklu frekar leiðin sem við viljum fara.“ SKYLDA AÐ VERA MEÐ ÁBYRGÐARTRYGGINGU Allir bílar á Íslandi eiga að vera með lögbundna ábyrgðartryggi