Meta braut ríkislög Nýju Mexíkó 40 milljón sinnum og sektað um þrjár trilljónir króna

Tæknirisinn Meta, sem meðal annars rekur samfélagsmiðlana Facebook, Instagram og WhatsApp, var í dag sektað um 25 milljarða Bandaríkjadala. Upphæðin nemur um þremur trilljörðum króna, þ.e. þrjú þúsund milljörðum.Sektin er sú hæsta sem Meta hefur fengið. Hana hlýtur Meta fyrir að hafa í áravís logið að notendum um notkun persónuupplýsinga notenda.CJ Mahony, aðallögfræðingur Meta, segir að dómurinn þýði að það sé „svo gott sem ómögulegt að stunda viðskipti í Nýju Mexíkó“. Hann segir að Meta muni áfrýja dómnum. BRUTU RÍKISLÖG 40 MILLJÓN SINNUM Dómurinn féll í ríkinu Nýja Mexíkó. Ákæran snéri að aðkomu Meta, sem þá hét Facebook, að hinum svokallaða Cambridge Analytica-skandali. Fyrirtækið Cambridge Analytica notaði upplýsingar milljóna Facebook-notenda í pólitískri ráðgjöf, þar á meðal í að
Meta braut ríkislög Nýju Mexíkó 40 milljón sinnum og sektað um þrjár trilljónir króna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd