Bleiki liturinn var áberandi í dag, bæði í skólum og á vinnustöðum.Fréttastofa leit við hjá Brynju Harðardóttur Tveiten listakonu, sem sigraðist á krabbameini og hefur sett upp sýningu í búðarglugga á Akureyri. Brynja segir þetta mikið meira en sýningu, þetta séu fagnaðarlæti.Þá voru slökkviliðsmenn á Akureyri í banastuði í bleiku og Bakaríið við Brúna seldi alls konar góðgæti með bleiku kremi til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands.