Ný úttekt á lestrarmenningu Íslendinga sýnir að æði misjafnt er eftir leikskólum hvort og hvernig bókakaupum er háttað. Það sama gildir um lestrarstefnuna. Úttektin nær yfir bókasöfn allra skólastiga auk almenningsbókasafna.Úttektin og meðfylgjandi skýrsla voru rædd í Kastljósi í kvöld.Skortur á fjármagni er rauði þráðurinn í úttekt á lestrarmenningu Íslendinga. Bókakaup og bókastefna í leikskólum eru handahófskennd, samkvæmt úttektinni.Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands, og Unnar Geir Unnarsson, safnstjóri Borgarbókasafnsins í Úlfarsárdal, eru sammála um að lítið í skýrslunni komi á óvart þeim sem starfi í bókageiranum.Unnar Geir segir það miður að heyra hve handahófskennd bókainnkaup og bókastefna sé í leik- og grunnskólum landsins. Hann minnir á að skólabókasöfn,