Forstöðumaður netöryggis- og gagnaþróunar hjá Advania segir klukkuna tifa eftir að greint var frá alvarlegum öryggisveikleika sem hefur áhrif á stóran hluta vefsíðna. Mikið og gott starf hafi verið unnið í dag til að loka fyrir öryggisholur en hann hafi áhyggjur af minni rekstraraðilum sem hafi ekki enn brugðist við.