Ekki má skjóta álftir þar sem tegundin er friðuð. Björgvin Þór Harðarsson, svína- og kornbóndi í Laxárdal í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, vill að gefið verði leyfi til að skjóta ungana því fuglinn fjölgi sér svo ört. Grágæsir eru líka til vandræða á kornökrum en þær má skjóta.Álftir hafa étið og skemmt um 20 hektara af kornökrum hjá kornbónda á Suðurlandi.Björgvin er einn af stærstu kornbændum landsins. Hann er meðal annars með nokkra stóra akra í Gunnarsholti á Rangárvöllum. Alls ræktar Björgvin korn á um 400 hekturum. Það eru ekki gleðitíðindi af kornræktinni þetta haustið hjá honum því álftir og grágæsir éta upp og traðka kornakrana eins og enginn sé morgundagurinn.„Hún kemur snemma á morgnana, svona í birtingu, og flýgur þá til lendingar fyrir utan akrana og labbar svo að brúninni og byr