Karlmaður sem er ákærður fyrir að smygla 43 kílóum af kókaíni til landsins í sendibíl í Norrænu kveðst ekki hafa vitað af efnunum.Þetta kom fram við upphaf aðalmeðferðar málsins fyrir Héraðsdómi Austurlands í dag, og Austurfrétt greinir frá.Þegar fíkniefnin fundust í bíl mannsins í lok mars á þessu ári var það mesta magn kókaíns sem lagt hafði verið hald á í einu máli á Íslandi.Samkvæmt Austurfrétt sagðist maðurinn við aðalmeðferðina í dag hafa komið til Íslands til að leita sér að atvinnu. Í máli saksóknara kom meðal annars fram að maðurinn átti bókaða heimferð með Norrænu viku eftir að hann kom til landsins, og að hann hefði eytt öllum gögnum úr farsímanum sínum á meðan hann beið í röð við landamæraeftirlitið á Seyðisfirði.