Umhverfis- og orkustofnun hefur veitt Samherja bráðabirgðaheimild til reksturs fiskþurrkunar á Laugum í Reykjadal. Heimildin gildir þar til nýtt starfsleyfi hefur verið gefið út, en úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi starfsleyfið úr gildi í síðasta mánuði.Í tilkynningu frá Samherja segir að úrskurður úrskurðanefndar umhverfis- og auðlindamála hafi byggt á því að við útgáfu starfsleyfisins hafi heilbrigðisnefndin ekki byggt á fullnægjandi gögnum við mat á ástandi vatnshlota í nágrenni starfseminnar.„ Úrskurðurinn beindist ekki að vanköntum á starfseminni enda hafði öllum skilyrðum útgefins starfsleyfis verið fullnægt,“ segir í tilkynningu Samherja.Þar segir að fyrirtækið hafi sótt um nýtt starfsleyfi og bráðabirgðaheimild frá Umhverfis- orkustofnun.Fiskþurrkun Samherja á Laugu