Stundarfjórðungi eftir klukkan níu að morgni 21. október 1966 breyttist hefðbundinn föstudagur í martröð í smábænum Aberfan í Suður-Wales. Stór gjallhaugur, úrgangur frá kolanámu í nágrenninu, sem hafði verið hlaðinn uppi á fjallshlíð ofan við bæinn, gaf sig eftir miklar rigningar.Yfir 100 þúsund rúmmetrar af fljótandi leðju steyptust niður fjallshlíðina á ógnarhraða og inn í bæinn. Leðjan lenti aðallega á barnaskóla bæjarins og íbúðarhúsum í nágrenninu. Síðasti skóladagurinn fyrir vetrarfrí var nýhafinn þegar slysið varð. 116 börn létust auk 28 fullorðinna.60 ár eru í dag frá hörmulegu námuslysi í smábænum Aberfan í Wales í Bretlandi. Á annað hundrað létust þegar stór gjallhaugur gaf sig og rann yfir hluta bæjarins. Á annað hundrað létust, þar af yfir hundrað börn.Gerald Kirwan var nemand