Atvinnuleysi meðal þeirra sem höfðu lokið námi í tölvunarfræði og skyldum greinum hefur aukist um 70% frá árinu 2024 eins og fjallað var um í Speglinum 20. október. Þegar spurt er um ástæður fellur grunur á gervigreindina en viðmælendur Spegilsins nefna aðra þætti sem nærtækari skýringar.Kári Harðarson byrjaði í tölvubransanum árið 1985, þá 19 ára gamall nemandi í MH. Hann vann við tölvur í nokkur ár áður en hann fór til Bandaríkjanna þar sem hann lauk námi í stærðfræði og tölvunarfræði. Hann hefur aðallega unnið við hugbúnaðargerð síðan, auk þess að kenna við Háskólann í Reykjavík. EINS KONAR YFIRMENN GERVIGREINDARINNAR Kári segir að starf tölvunarfræðinga hafi breyst rosalega mikið og rosalega hratt. Sá sem áður vann við að forrita sé nú miklu frekar orðinn eins og eins konar yfirmaðu