Kópavogsbær ætlar í fyrsta sinn að innrita tvisvar á leikskóla á næsta ári: á vorönn og haustönn. Elstu börnin á núverandi biðlista verða tekin inn í janúar.„Þetta er árangur sem við erum að sjá með tilkomu Kópavogsmódelsins,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri.Samkvæmt Kópavogsmódelinu eru fyrstu sex vistunartímar barna ókeypis en séu börn lengur kostar það meira en sambærilegur vistunartími í öðrum sveitarfélögum.Ásdís segir leikskólana fullmannaða og þess vegna sé hægt að bjóða fleiri börnum leikskólapláss.„Við getum núna í fyrsta skipti í Kópavgi boðið börnum leikskólapláss ekki bara einu sinni eins og við höfum venjulega verið að sjá á haustin heldur líka munum við núna geta boðið börnum jafnframt leikskólapláss, allt niður í 12 mánaða, núna á vorönninni.“Ásdís segir úthlutun lei