„Þetta snýst um nemendur en ekki að ráðherra hafi síðasta orðið“

Aðstoðarskólastjóri segir fyrirætlanir menntamálaráðherra um að innleiða nýjan námskvarða í grunnskóla illa ígrundaðar. Tímasetning innleiðingar sé óraunhæf. INNLEIÐING ÓGERLEG Á SVO SKÖMMUM TÍMA Nemendum í 10. bekk grunnskóla verður gefin lokaeinkunn í tölustöfum í stað bókstafa í vor, verði áætlanir menntamálaráðherra að veruleika. Það verður í fyrsta sinn í rúman áratug sem einkunnir í grunnskóla verða gefnar í tölustöfum, eða síðan bókstafseinkunnir voru teknar inn í aðalnámskrá 2011 og innleiddar að fullu 2015.Margrét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri Skarðshlíðarskóla, situr í innleiðingarhópi menntamálaráðuneytis. Hún segir þessar fyrirætlanir áhyggjuefni. > „Ég bara fer ekkert ofan af því að tímasetningin er óraunhæf og að ætlunin að innleiða þetta á svo skömmum tíma er óge
„Þetta snýst um nemendur en ekki að ráðherra hafi síðasta orðið“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd