Anton Már Egilsson, forstjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis, segir mjög langan lista vefsíðna og kerfa hafa verið berskjaldaðan vegna alvarlegra veikleika í PHP-forritunarmálinu.Greint var frá því að tveir veikleikar hefðu fundist í dag. Talið er að allt að 70 prósent vefsíðna heimsins gætu verið í hættu vegna þeirra.Öryggisgallinn hafði áhrif á margar íslenskar vefsíður. Til dæmis lá vefur Reykjavíkurborgar niðri tímabundið á meðan unnið var að uppfærslu. Það sama gilti um vefi Háskóla Íslands og truflana varð vart á vefsíðu Strætó.„Listinn er mjög langur. Við getum sagt að þetta sé þverskurður af íslensku atvinnulífi sem er á einn eða annan hátt að keyra þetta í einhverju,“ segir Anton Már. SETJA PLÁSTURINN Í GERVIGREINDINA Klukkan tvö síðdegis var gefin út öryggisuppfærsla til að br